Til þess að gasgrillið endist sem lengst þarf að yfirfara það reglulega og halda því við. Hér förum við yfir nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
Aftengja gaskút frá grillinu og ganga frá á öruggan stað.
Mikilvægt er að setja undirbreiðslu undir grillið til að taka á móti óhreinindum.
Könnum ástandið á brennaranum í grillinu. Ef hann reynist illa farinn eða skemmdur er lítið mál að athuga með nýjan í næstu verslun BYKO.
Skafa öll óhreinindi og lausa málningu af gasgrillinu með sköfu.
Spreyjum grillhreinsi á alla fleti grillsins til að leysa upp fitu og önnur óhreinindi.
Skrúbba vel yfir alla kanta grillsins með vírbursta eða grófum svampi til að ná sem mestum óhreinindum í burtu.
Skola af með vatni og láta grillið þorna.
Spreyjum viðarhreinsi á viðarborð grillsins og bursta svo yfir.
Strjúka létt yfir með sandpappír á viðarborð grillsins.
Mála með viðarolíu og þurrka af með tusku eða bómullarklút.
Gott er að slípa létt yfir flötinn sem á að úða - lakkaði hluti grillsins.
Breiða yfir ákveðna hluti grillins sem ekki á að spreyja og athuga vindátt.
Úða hitaþolnu lakki með úðabrúsa á lökkuðu fleti grillsins.
Fjarlægja undirbreiðsluna af grillinu.
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394